![]() |
|
|
mánudagur, júní 19, 2006 Jæja þá er þetta yfirstaðið!! Helvítis flutningarnir... við skiluðum af okkur í búðinni í nótt eftir ógeðishelgi!!Við fengum hina íbúðina afhenda á fimmtudagskvöldið og byrjuðum að flytja inn á föstudaginn, ég ennþá fárveik og Bassi fór síðan að spila á föstudagsnóttinni. Síðan vorum við að allan laugardaginn og fram á kvöld og aftur fór Bassi að spila um nóttina! Sunnudagurinn var svo erfiðastur.. þá vorum við orðin veeeel þreytt, bakið farið að segja óþægilega mikið til sín hjá mér og Bassi elzkan að lognast niður úr þreytu þar sem að ég gat lítið hjálpað til við flutninga á hlutum og kössum (bæði vegna flensunnar og líka þar sem að læknirinn sagði við mig í seinustu viku að ég mætti alls ekki lyfta þungum hlutum).. Þegar allt var komið út úr íbúðinni í gær þá áttum við eftir að þrífa íbúðina.. Vegna þreytu og slappleika okkar þá vorum við að því fram á nótt!! Ég er ekki frá því að við höfum bæði tárast þegar við lögðumst uppí rúm í nótt eftir þetta ógeð.. !! við leiddum einmitt hugann að því þegar við vorum komin uppí hvað það er spes að þegar maður stendur í svona brjálæði - flutningum á sama tíma og ég er ólétt og ennþá veik af flensu og Bassi að spila báðar næturnar þessa helgi - að þá einhvern veginn hverfa vinir manns.. En nýja íbúðin leggst vel í okkur og getum við ekki beðið eftir því að vera búin að koma okkur fyrir í henni.. :) Mun svo bjóða ykkur í heimsókn í nýju híbýlin þegar hún verður orðin falleg.. :) Vallý mín til hamingju með afmæli á laugardaginn.. :* vonandi áttirðu unaðsdag! Annna Friðrika til hamingju með daginn í dag.. vonandi verður hann æðislegur! :* Kvenmenn, til hamingju með daginn í dag! Og Bassinn minn.. þú ert hetjan mín! :* linda.. @ 22:41 :: | |
..::lindan::.. GESTABÓKpóstur til mín ..::daglegi rúnturinn::.. Agnes sys ..::barnablogg::.. Bumbukriluzið okkar gamalt & gott.. febrúar 2005 |