![]() |
|
|
sunnudagur, maí 14, 2006 Jesús almáttugur... nákvæmlega hversu mikið getur maður grátið yfrir sjónvarpinu!ég horfði á kompás í kvöld þar sem að var byrjað á því að tala við Bebbu og Hjölla sem að eiga hana Bryndísi Evu sem að er svo veik á sjúkrahúsinu.. hún er búin að vera þar í 5 mánuði og verður bara veikari og veikari og að sjá hversu sterk þau voru og hvað þessi litla fjölskylda er mikil hetja... og hvað aðstaða þeirra á sjúkrahúsinu er ömurleg..!! að það sé í alvörunni ekki huxað betur um fólkið í þessu landi.. að þeir sem yfir eru skuli eyða peningunum í eitthvað sem að öllum er fjandans saman um..! maður verður svo reiður og þetta tek nokkuð á skal ég viðurkenna... eftir það tóku gugga og jói við, fíklarnir sem að kompás hefur verið að fylgjast með.. almáttugur hvað þetta hlýtur að vera erfitt líf að vera svona upp á eitthvað efni komin.. að vera svona mikill fíkill og hafa enga stjórn á sjálfri sér og svo þegar gugga spurði hvort að amma hennar eða einhver af hennar fjölskyldu væri búin að hringja upp á NFS til að athuga um hana.. hún varð svo sár þegar hún fékk neitun frá fréttamanninum.. æj vá.. þegar þessi kompás var búinn þá var ég búin að gráta svo óendanlega mikið.. úff hvað lífið getur verið erfitt og ósanngjarnt fyrir suma... linda.. @ 21:57 :: | |
..::lindan::.. GESTABÓKpóstur til mín ..::daglegi rúnturinn::.. Agnes sys ..::barnablogg::.. Bumbukriluzið okkar gamalt & gott.. febrúar 2005 |